Auglýsing

Nýjast á HumorPix

Funny Images, World?s Tallest Man Meets World?s Shortest Man Funny Images, Woman behind the wheel Funny Images, Small Kitty Falling Asleep Funny Images, Aliens are everywhere Funny Images, Doubt 2 Funny Images, Tooth fairy

Könnun

Blátt eða Rautt?

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Tenglar

Klukkedí klukk klukk...

21. október 2008 klukkan 22:19

Hæ, ég var víst klukkaður af hinni elskulega Kareni Helgu...takk fyrir það Tongue out


 Stutt bara núna...kem með blogg við fyrsta tækifæri..





4 störf sem ég hef unnið um ævina
:

*Bæjarvinnan
*HB
*Penninn
*Staftré

4 bíómyndir sem ég held uppá:
*Into the wild
*Remember the Titans
*Kingdom of Heaven
* ALlt með Denzel Washington :)
 
4 staðir sem ég hef búið á:

Ihhh... hvað get ég sagt??

*Setberg

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:

*Family Guy
*Vaktirnar (dag/nætur)
*My name is Earl
*Venni Páer

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríium:

*England
*Danmörk
*Húsavík
*Kirkjubæjarklaustur

4 síður sem ég skoða daglega(fyrir utan bloggsíður):

*245.is
*fotbolti.net
*f4x4.is
*kvartmila.is

4 matarkyns sem ég held uppá:

*Subway
*Lambakjöt
*Reykt Svínakjöt
*Skyr

4 bækur/blöð sem ég les oft:
*Hver les bækur og blöð í dag? Þetta er allt á netinu!


4 staðir sem ég myndi helst vera núna:

*Anfield
*í Jeppaferð
*á bílasölu
*Hawaii

4 bloggarar sem ég klukka:

*Magni og Guðbjörg
*Begga
*Adda
*GillZenegger


 Bless í bili...
Gísli Jónatan Pálsson
7 athugasemdir

Risinn er risinn....

07. október 2008 klukkan 17:11
  Jæja...Góðan daginn hér :D  Langt síðan síðast? Ehh...leyf'mér að hugsa.... ehhh já :)

 Hvað með það...

 Vaknaði í morgun og hef sjaldan verið svona illt í endaþarminum... Hví, spyrðu kannski... jú það er vegna þess að það ver einhver svo afskaplega fyndinn að koma þeirri sögu af stað að bensín líterinn myndi hækka um 30-50 kr á miðnætti í gær.  Ég var nú aldeilis ekki að kaupa þetta, fussaði og sveijaði bara..

  En klukkan 23:15 í gærkvöldi, þegar ég fékk símhringingu númer 3 og búinn að heyra það frá um 8 manns að þetta væri í raun að fara að gerast, þá reif ég mig af stað til að dæla á bílinn. Þegar ég mæti á N1 niðrá bryggju hér í Sandy...þá voru hvorki meira né minna en 13 stykki bílar! Og búið að vera gegnum gangandi stappað planið þarna allt kvöldið... Hvað um það, ég beið í einhverjar 20- 25 mín eftir að komast að og jájá... allt í góðu, dæli svo fyrir 12 þúsund íslenskar krónur, sem btw náði ekki að fylla bílinn,  og hélt svo heim haldandi það að nú hefði maður sloppið billega.  Þegar ég yfirgaf staðinn voru örugglega 16 bílar á planinu og klukkan orðin 23:40.
 
 Lagðist svo á koddann þegar heim var komið og fór að hugsa... "vá hvað það er einhver alveg skellihlæjandi núna" ... En vonaði það besta.
 Svo vaknar maður í morgun, og hvað hafði gerst??



  Jú góðir hálsar... líterinn LÆKKAÐI um heilar 11 krónur... og munar nú um minna á þessum siðustu og verstu tímum.

 Ég verð að viðurkenna það að mér finnst þetta frekar spaugilegt, þó svo að buddan hafi aðeins fengið að finna fyrir því.


 Kreppa. 

Þetta orð er ansi oft í útvarpinu, sjónvarpinu og á vörum fólks í dag. Það eiga eflaust margir eftir að fara flatt á því eftir fylleri undanfarinna ára, vonandi að við lærum af þessu.
 Kreppa eða ekki kreppa, það breytir því ekki að ég er að byggja, þó að hægt gangi. Er búinn að vera voða rólegur í tíðinni með þetta allt saman, en þó gengur eitthvað...   



 Setti líka fleiri myndir í albúmið Glottandi


 Veit ekki hverju ég ætti að ljúga meira... Nenni ekki að fara að tíunda allt sem að á daga mína hefur drifið síðan í vor

 Bless í bili...
 


Gísli Jónatan Pálsson
5 athugasemdir

Tíðindi úr Sveitinni

05. maí 2008 klukkan 17:26
Komiði öll sæl og blessuð...! (Jón Ársæll version)

Tíðindi úr sveitinni já... það er engin lygi.

Óðalsprinsinn frá Setbergi er búinn að kaupa sér hús...Parhús til að vera nákvæmur. Splæsti í annan endann á húsinu sem við höfum verið að byggja hjá Staftré... Kompaníið hans pabba. Keyptum sinnhvorn endann ég og Dabbi BinnaGauj, vinnufélagar, frændur og vinir... Spurning hvort við fáum leið á hvor öðrum hehe Hlæjandi

Breiðhóll 16 Sandy Hills er adressan á innflutningsteitinu sem rjóminn af samfélaginu verður boðið í...hvenær það verður kemur bara í ljós.



Þetta eru herlegheitin... fleiri myndir í albúmi

Átakið gengur bara flott ennþá, kjúklingur í flestar kvöldmáltíðir og 3 próteinsjeikar á dag...komnir 6 mánuðir og ekki enn kominn með leið Brosandi
42 aftálguð kvikindi... það myndi ég kalla bara nokkuð gott. Allavega er ég þrusu stoltur af sjálfum mér. Maður verður að fara endurskoða takmarkið sem ég setti fyrir næstu jól...50kg, ég fer alltof létt með það...eða 2EZ einsog einhver orðaði það...

Sumarið komið í sveitinni, nú vaknar maður við fuglasönginn og friðsældinni hérna... loving it maður. Heyskapur og allt sem því fylgir brestur senn á, það er bara ekki annað hægt en að vera glaður í hjartanu. Lífið í sveitinni...Hreimur hlýtur að hafa verið í sveit þegar hann samdi lagið "lífið er yndislegt" sem einhverjir kannast við.


Öskjuhlíðin á sunnudagskveldi... renndi með góðum hópi til að svala forvitninni. Hef oft heyrt að samkynhneigðir karlmenn á öllum aldri kæmu þar saman til að stunda það sem samkynhneigðir gera... var svona nett vantrúa.
En viti menn... það var allt krökkt af bílum þarna, sumir bílarnir með 2 karlmönnum innanborðs og aðrir einmannaðir. Þarna koma þessir menn til að sýna sig og sjá aðra, í skjóli nætur. Koma akandi á bílum sínum, leggja þeim og bíða eftir gylliboðum frá öðrum í sömu hugleiðingum. Veit ekki hvort þeir eru að þessu vegna þess að þeir skammast sín fyrir sjálfa sig eða þeim þykir þetta eitthvað sport.
Eitt veit ég, mér finnst þetta virkilega ógeðfellt, þetta er útivistarsvæði og svona lagað á ekki heima þarna. Sjúkt lið...

Hvar er Kompás núna??




Jæja... Gillarinn kveður í bili
Gísli Jónatan Pálsson
18 athugasemdir

You son of a beach!!

12. mars 2008 klukkan 12:01
Sælar!!

Veraldarvefurinn er uppfullur af allskonar rugli, ætla að deila með ykkur einni klippu sem ég datt inná. Ég grenjaði úr hlátri þegar ég sá þetta...

Enjoy:

http://youtube.com/watch?v=m1TnzCiUSI0








Heimsmetabók Guinnes er líka stútfull að ýmiskonar ónytsamlegum fróðleik, t.d veist þú hvert heimsmetið er að lifa lengi hauslaus??


*Hæna sem lengst hefur lifað að hauslaus


10. september 1945 var ameríska hænan Mike hálshöggvin. Hín lifði þetta hins vegar af í ÁTJÁN mánuði. Eigandi Mike, Lloyd Olsen (Bandaríkjamaður), gaf henni fóður og vatn með því að renna því beint niður í strjúpann. Mike kafnaði loks á hnetukjarna á móteli í Arizona.

Þetta er bara fyndið... lifir í átján mán. hauslaus...og kafnar svo á hnetu hahahaha



Annars er allt gott að frétta úr sveitinni, kallinn kominn í 36 kvikindi. Rokkar svolítið upp og niður þessa dagana....


Kíkti á Primo á lau. Fórum út að borða, eða semsagt meistarflokkur Reynis í knattspyrnu.
Þeir buðu mér og Fannsa með, og var þetta bara hin mesta skemmtun. Kynntist nýju strákunum aðeins og eru þetta gull af mönnum. Eftir matinn var svo "Burn" partý... fékk mér aðeins í glas og var einsog verður kannski best orðað... blindbeyglaður.

Ég var að koma á Primo í fyrsta skipti og bara verð ég að segja það... loksins er kominn svona snyrtilegur staður til að kikja á. Flottur veitingastaður og fínt að fá sér í glas þarna. Flottur svona fyrir fólk á mínum aldri Glottandi


Svo svona rétt í lokin... Endilega kikið á síðuna hjá Silju, hún lofaði að blogga í dag í sambandi við bústaðarferðina góðu. Verðum að fara negla þetta.

Jæja, thats it for now ;)

Gísli Jónatan Pálsson
4 athugasemdir

Klósettseta með pumpu!

28. febrúar 2008 klukkan 22:15
Sælar!

Eurovision... Bara segja eitt... Páll Óskar sannaði enn og aftur snilli sína! Taka lag sem var illáhlustanlegt og gera það bara að þessu helvíti fína dansilagi. Allavega dilla ég mér aðeins í hvert skipti sem ég heyri þetta... kemur til með að gera fína hluti í Serbíu (er keppnin ekki haldin þar annars?)

Mercedes Club, ég varð bara fyrir vonbrigðum...söngkonan var bara einhversstaðar allt annarstaðar en á sviðinu þarna í byrjun... ég fékk svona kjánahroll, skelfilegur söngurinn.

Það hefur lengi loðað við gæja sem gera ekkert annað en að pumpa járni og massa sig í hel... að vera gjörsamlega tómir í toppstykkinu. Fimm orð... Gaz-man, Ísland Í Dag. Sáuði viðtalið? Ég hélt að ég yrði ekki eldri, maðurinn er einsog frumbyggi. Kannski er þetta bara grín.... Dæmi hver fyrir sig



...klárlega besta setningin " 'edda er ikki sílikon"

Og... hnykkjum aðeins meira brjóstvöðvana... komon... Hlæjandi


Að lokum...hafiði séð klósettsetu með pumpu? Þvílík snilld maður, maður er búinn að pissa, þá bara tosar maður rétt í setuna...og hún bara lokast sjálf, hægt og mjög örugglega. Ekkert að beygja sig og eitthvað vesen... SNILLD!!

jæja...þangað til næst
Gísli Jónatan Pálsson
9 athugasemdir

Chuck Norris!!

27. febrúar 2008 klukkan 17:03
  Sællertu!! (stolið eða??)

 Hefurðu ekkert að gera?

 Þegar fólk hugsar um Chuck Norris...þá fer ýmislegt í gegnum hugann. Þegar ég hugsa um hann...þá hugsa ég ekki neitt!! maðurinn er GUÐ!!

Chuck Norris


Hérna koma nokkrar staðreyndir um meistarann...enjoy:


Chuck Norris' tears cure cancer. Too bad he has never cried.

Rather than being birthed like a normal child, Chuck Norris instead decided to punch his way out of his mother's womb. Shortly thereafter he grew a beard.

Chuck Norris sold his soul to the devil for his rugged good looks and unparalleled martial arts ability. Shortly after the transaction was finalized, Chuck roundhouse kicked the devil in the face and took his soul back. The devil, who appreciates irony, couldn't stay mad and admitted he should have seen it coming. They now play poker every second Wednesday of the month

Chuck Norris does not sleep. He waits.

Chuck Norris built a time machine and went back in time to stop the JFK assassination. As Oswald shot, Chuck met all three bullets with his beard, deflecting them. JFK's head exploded out of sheer amazement

Chuck Norris's girlfriend once asked him how much wood a woodchuck could chuck if a woodchuck could chuck wood. He then shouted, "HOW DARE YOU RHYME IN THE PRESENCE OF CHUCK NORRIS!" and ripped out her throat. Holding his girlfriend's bloody throat in his hand he bellowed, "Don't fuck with Chuck!" Two years and five months later he realized the irony of this statement and laughed so hard that anyone within a hundred mile radius of the blast went deaf.

Chuck Norris once roundhouse kicked someone so hard that his foot broke the speed of light, went back in time, and killed Amelia Earhart while she was flying over the Pacific Ocean.

To prove it isn't that big of a deal to beat cancer. Chuck Norris smoked 15 cartons of cigarettes a day for 2 years and aquired 7 different kinds of cancer only to rid them from his body by flexing for 30 minutes. Beat that, Lance Armstrong.

Chuck Norris doesnt shave; he kicks himself in the face. The only thing that can cut Chuck Norris is Chuck Norris.

Chuck Norris won 'Jumanji' without ever saying the word. He simply beat the living shit out of everything that was thrown at him, and the game forfeited.

The chief export of Chuck Norris is pain.

Chuck Norris is currently suing NBC, claiming Law and Order are trademarked names for his left and right legs.

Chuck Norris is not hung like a horse... horses are hung like Chuck Norris

Chuck Norris was the fourth Wiseman. He brought baby Jesus the gift of "beard". Jesus wore it proudly to his dying day. The other Wisemen, jealous of Jesus' obvious gift favoritism, used their combined influence to have Chuck omitted from the Bible. Shortly after all three died of roundhouse kick related deaths.

If you can see Chuck Norris, he can see you. If you can't see Chuck Norris you may be only seconds away from death.

When Chuck Norris sends in his taxes, he sends blank forms and includes only a picture of himself, crouched and ready to attack. Chuck Norris has not had to pay taxes ever.

Chuck Norris lost his virginity before his dad did.

Chuck Norris can make a woman climax by simply pointing at her and saying "booya".

Chuck Norris once ate three 72 oz. steaks in one hour. He spent the first 45 minutes having sex with his waitress.

Chuck Norris doesn't read books. He stares them down until he gets the information he wants.

When Chuck Norris plays Oregon Trail his family does not die from cholera or dysentery, but rather roundhouse kicks to the face. He also requires no wagon, since he carries the oxen, axels, and buffalo meat on his back. He always makes it to Oregon before you.

There are no disabled people. Only people who have met Chuck Norris

After much debate, President Truman decided to drop the atomic bomb on Hiroshima rather than the alternative of sending Chuck Norris. His reasoning? It was more "humane".

Chuck Norris frequently signs up for beginner karate classes, just so he can "accidentally" beat the shit out of little kids.

Chuck Norris does not have AIDS but he gives it to people anyway.

Filming on location for Walker: Texas Ranger, Chuck Norris brought a stillborn baby lamb back to life by giving it a prolonged beard rub. Shortly after the farm animal sprang back to life and a crowd had gathered, Chuck Norris roundhouse kicked the animal, breaking its neck, to remind the crew once more that Chuck giveth, and the good Chuck, he taketh away

Chuck Norris once shot a German plane down with his finger, by yelling, "Bang!"

When Chuck Norris has sex with a man, it is not because he is gay, but because he has run out of women.

The original theme song to the Transformers was actually "Chuck Norris--more than meets the eye, Chuck Norris--robot in disguise," and starred Chuck Norris as a Texas Ranger who defended the earth from drug-dealing Decepticons and could turn into a pick-up. This was far too much awesome for a single show, however, so it was divided.

One of the greatest cover-ups of the last century was the fact that Hitler did not commit suicide in his bunker, but was in fact tea-bagged to death by Chuck Norris.



 Kanntu ekki ensku?? Too bad.


 Þessi færsla er sérstaklega tileinkuð besta frænda mínum... honum Ástþóri. En hann er sennilega mesti aðdáandi Chuckarans á skerinu!!
Gísli Jónatan Pálsson
5 athugasemdir

Happy New Year!!

06. febrúar 2008 klukkan 23:14
 Jahérna, ég ætlaði aldeilis að "koma með flott blogg á næstu dögum" , sagði ég í síðustu færslu... Dagarnir eru orðnir þónokkrir síðan. 

 
 Jólin... Fór næstum í jóla köttinn, átti engin föt sem ég passaði í (In a good way), en slapp fyrir horn... Heildarmyndin: Fínustu jól bara..


 Áramótin... Virkilega skemmtileg, var í mat hjá skólastýrunni henni systur minni og hennar fjölskyldu.. Það klikkði ekki frekar en fyrri daginn, skutum svo gamla árið upp hjá hinni systur minni, námsmanninum.   Svo var haldið í teiti ársins á nokkurs vafa, Fannson átti heiðurinn að því og skemmti ég mér alveg hreint konunglega, fór ekki heim fyrr en um 10 á Nýársdagsmorgun. Takk fyrir mig Fannar.


 
 Byrjaði hjá hnykkjara um miðjan jan... Árángurinn leynir sér ekki, þó svo að ég hafi misst mig aðeins í gleðinni og aðeins skemmt fyrir mér.. en þetta kemur allt með kalda vatninu Glottandi  Eina sem ég get sett útá er hvað þetta er helvíti dýrt... ert inni hjá honum í einhverja 5-10 mín og fyrir það borgar maður rétt tæpar 3000 krónur. Plús það að maður þarf að taka frí í vinnu og keyra til Reykjavíkur.... Allt saman telur þetta En...þetta vonandi borgar sig...


 Svo er það blessað átakið, ég er ennþá á fullu í því.... 34 kg. farin. Náði þó ekki takmarkinu fyrir áramót, stóð þá í 29.6kg. Var svosem ekkert að gráta það, ein skita til eða frá...hvað er það á milli vina Brosandi


 
 Karen Helga átti afmæli á mán (til lukku með það *risakoss*) og hélt hún uppá það á lau. Fínasta teiti, góður hópur þó það hafa vantað einhverja. Haldin var mjög svo óvænt flugeldasýning með hvorki fleirum né færri en 2 rakettum!! Með betri sýningum í þessum mánuði leyfi ég mér að fullyrða.


 Áfengispásan sem ég ætlaði í í jan verður að bíða, eitt djamm enn, svo er það pása ekkert rugl! Um skyldudjamm hjá Sandgerðingum er að ræða... MammaMía djamm. DJ TomZ á að þeyta skífum, og verður svaka ljósjó,reykur og allur pakkinn auk eins svakalegasta hljóðkerfis sem komið hefur yfir heiðina góðu. Veit ekki alveg hvort þakið á kofanum haldi, en þá verða strákarnir í Sigurvon klárir í göllunum...



 Veit ekki hverju ég á að skella hér inn næst, hálftómur...

 Veðrið búið að vera einsog það hefur verið SKEMMTILEG, eina sem mig vantar er alvöru jeppi þá væri ég með þeim sáttari Hlæjandi

 Sumir vilja þó meina að það snjói meira í Grindavík en annarsstaðar...veit ekki meir Ullandi



 Jæja... ég er út! 

 Áfram Reynir
Gísli Jónatan Pálsson
23 athugasemdir

Jólasnjór...nei, nei...það er jólarigning!!

20. desember 2007 klukkan 22:42

 Vá hvað það er allt grámyglulegt. Og það þegar það á allt að vera svo fallegt, jólaljós, jólasnjór og allt þetta jóla... nei þá er grenjandi rigning og hífandi rok dag eftir dag eftir dag eftir dag!!
 En þetta stendur vonandi til bóta, spáin segir að hann fari að snjóa seinnipart aðfangadags og snjónum eigi að kyngja niður aðfaránótt jóladags......

 Kallinn er byrjaður að vinna aftur eftir semí langt ´sumarfrí :D Vá hvað það er gaman, er samt búinn að vera sofnaður kl 10 alla vikuna dauður eftir daginn, sem er bara fínt.


 27 kvikindi voru farin síðasta laugardag, og er ég vingóður um að markmiðið sem ég setti fyrir áramót (30k) náist Brosandi

 Svenni lendir á klakanum  3. jan... vá hvað ég get ekki beðið. Það verða fagnaðarfundir.


 Jæja ég er farinn að sofa, nenni ekki meir.
Þetta var bara til að þagga niður í ákveðinni manneskju, kem með fínt blogg á næstu dögum.



síja
Gísli Jónatan Pálsson
11 athugasemdir

YNWA!!

07. desember 2007 klukkan 12:42
 Hæbb....

 Jæja, þá er fyrsta boltaferðin afstaðin, og ég fer sko aftur í svona ferð...ekki spurning!
ég og KH
 Ferðin var tær Zhnilld frá því að Karen Helga Sótti mig um 3 á föstudagin og skutlaði mér heim um 4 á þriðjudagsmorgunn. Ég skemmti mér konunglega, og hópurinn var bara helvíti góður... mikið hlegið og glensað.

 "Did you order að prostitude" er frasi sem heyrðist ansi oft.... og mun eflaust heyrast áfram, einkahúmor af bestu gerð. "be in a band" var góður líka... hehe

 Fórum útá lífið fyrsta kvöldið, sem er kannski ekki frásögu færandi, nema hvað.... þetta var svo HEL HÝR klúbbur að hálfa væri nóg, Motorhead gaurinn var pricelass og feitu skallapoppararnir sem voru að slefa uppí hvorn annan...ég bíð þess aldrei bætur, hef átt erfitt með svefn síðan. Komumst svo að því þegar við vorum á leiðinni heim...að þetta var gay hverfið í Manchester...hehehe

 Stelpurnar og SS gengið (Spalli og Svabbi) misstu sig í innkaupunum...á meðan við ungu strákarnir vorum bara spakir.... kom heim með um helminginn af peningnum sem ég fór með...

 Anfield var rosalegt, þegar You'll never walk alone var sungið... þá var ég með gæsahúð allan tímann, án efa hápunktur ferðarinnar Svalur   Liverpool vann Bolton 4-0 og var þetta einstefna allan tímann. Það er kannski þessvegna sem að stemmingin var ekki alveg einsog hún á að sér. Vantaði alla spennu í leikinn... Stemmingin á Old Trafford var ívið meiri, enda unnu United menn "bara" 2-0 lið Fulham og var meiri spenna í þeim leik.  ég Aron og Spalli

 Anfield er komið til ára sinna, það verður algjör bylting þegar Stanley Park verður tekinn í gagnið, hann kæmist inní Old Trafford, sem er svakalegur stadium..

 jæja... nenni ekki meira...  KHelga, Margrét, Spalli, Marri, Aron og Svabbi... takk fyrir frábæra ferð Glottandi

 Það eru komnar myndir inn í "myndir" frá ferðinni...

 Later peeps
Gísli Jónatan Pálsson
8 athugasemdir

Fiðringur....

27. nóvember 2007 klukkan 18:12
 Ég er satt best að segja að farst úr spenningi... 3 dagar...Þetta er alveg að bresta á, Boltaferðin góða...Shjitt hvað ég get ekki beðið, næstu nætur verða sennilega svefnlitlar Hlæjandi

 Ætli við verðum í KOPparanum?? Svalur


 Fór á Hótel Sögu á laugardaginn á Jólahlaðborð. Staftré bauð mannskapnum á herlegheitin og var herbergi og fínerí....

 Hemmi Gunn kallinn klikkar ekki, stóð fyrir sínu sem og Raggi Bjarna. En Hara systur...þið bara verðið að fyrirgefa, mér finnst þær bara enganveginn eiga skilið að vera í svona sýningu einsog var boðið uppá þarna. Gaman að horfa á dökkhærðu stelpuna, en söngurinn, að mínu mati, þokkalegur karókí performans. Annars eru þær mjög líflega á sviði...það vantar ekki Glottandi

 Tek það skýrt fram að ég er ekkert menntaður í þessum geira...

 Ætluðum svo að enda kvöldið niðrí bæ, ég,Rúnar og PJ, en ég þurfti frá að hverfa og fór snemma í háttinn. (SRY team)

 Veit ekki hverju ég á að ljúga meira... ég er voðalega blank eikkað...

 Já... og Ásthildur... fyrirgefðu, bæti þér þetta uppSaklaus


 Og eitt enn... þeir sem eiga hjá mér vinninga, (bjórinn) síðan í getraununum hérna...einhverntímann fyrir langalöngu, ég er ekki búinn að gleyma þessu, reyndar... hverjir unnu aftur? Linda Sylvía og Sædís? man ekki alveg..

 
Gísli Jónatan Pálsson
14 athugasemdir